Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 2. október. Þar með er verkefninu Göngum í skólann formlega lokið þetta árið.
Margir skólar sendu inn frásagnir og myndir af því sem fór fram í skólunum og hefur verið gaman að fylgjast með því hversu fjölbreytt og skemmtilegt starfið er í grunnskólum landsins. Sjá nánar25.09.2019 10:00
Okkur hafa borist þónokkrar frásagnir af því sem hefur verið gert í tilefni af Göngum í skólann. Hér eru nokkrar skemmtilegar. Sjá nánar12.09.2019 13:45
Göngum í skólann verkefnið fer vel af stað en alls 73 skólar eru skráðir til þátttöku í verkefninu.
Víkurskóli sendi nýlega inn frásögn og myndir á vefsíðu verkefnisins en þátttökuskólar eru hvattir til þess að senda myndir, frásagnir og/eða myndbönd af verkefninu.Sjá nánar04.09.2019 11:52
Göngum í skólann var sett í Hofsstaðaskóla í Garðabæ í morgun að viðstöddum góðum gestum. Hafdís B. Kristmundsdóttir skólastjóri byrjaði á því að bjóða nemendur og gesti velkomna. Þráinn Hafsteinsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ tók síðan við og flutti stutt ávarp og stjórnaði dagskrá. Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, flutti skemmtilegt ávarp þar sem hún kenndi viðstöddum 3 tákn á táknmáli, göngum, skóli og heim, en það vakti mikla lukku.Sjá nánar02.09.2019 14:46
Opið er fyrir skráningu í Göngum í skólann 2019 og hefur skráning skóla farið vel af stað. 35 skólar hafa nú þegar skráð sig. Hægt verður að skrá sig til leiks meðan á verkefninu stendur eða fram að alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 2. október næstkomandi.Sjá nánar26.08.2019 13:51
Vikuna 23. - 30. september fer fram Íþróttavika Evrópu víðsvegar um álfuna. Markmið íþróttavikunnar er að kynna íþróttir og hreyfingu fyrir almenningi í Evrópu og er hún ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive með það að markmiði að fá sem flesta til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.
Sjá nánar20.08.2019 11:07
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samtarfsaðilum ræsir verkefnið Göngum í skólann í þrettánda sinn miðvikudaginn 4. september næstkomandi. Ætlar þinn skóli ekki örugglega að taka þátt í ár?Sjá nánar