04.10.2024 Það getur borgað sig að taka þátt í Göngum í skólann. Í ár var ákveðið að hætta með litlu skráningarverðlaunin og aukaverðlaun til þeirra skóla sem sendu inn frásögn, myndband eða myndir. Það voru þrír skólar dregnir út af handahófi og fær hver skóli 150.000 gjafabréf frá Altis. Skólarnir sem voru dregnir út eru
Grandaskóli,
Bláskógarskóli og
Reykhólaskóli. ÍSÍ óskar þessum skólum innilega til hamingju og vonast til að þetta muni nýtast vel á skólalóðinni eða í íþróttatímum.