Þá er verkefninu Göngum í skólann lokið. Í ár tóku 77 grunnskólar þátt en það er virkilega ánægjulegt að sjá hvað skólar taka Göngum í skólann verkefninu vel.
Þrír þátttökuskólar verða dregnir út og fá þeir hver um sig 150.000 kr. gjafabréf hjá Altis sem selur vörur til að nota á skólalóðinni eða í íþróttasalnum. ÍSÍ mun hafa samband við þá skóla sem verða dregnir út en einnig verða nöfn skólanna sett á heimasíðu verkefnisins.
Árlega taka milljónir barna þátt, frá yfir fjörutíu löndum víðs vegar um heiminn, í verkefninu Göngum í skólann. Markmið verkefnisins er að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Einnig að stuðla að heilbrigðum lífsstíll, draga úr umferð við skóla og þar með úr umferðarþunga ásamt því að stuðla að vitundarvakningu um virkan ferðamáta og umhverfismál.
ÍSÍ þakkar samstarfsaðilum verkefnisins fyrir en þeir eru Samgöngustofa, Ríkislögreglustjóri, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heimili og skóli. Embætti landlæknis, Slysavarnarfélagið Landsbjörg og European Commission #BeActive
Hér má finna myndasafn verkefnisins.