Göngum í skólann 2024 verður sett hátíðlega miðvikudaginn 4. september í Brekkuskóla á Akureyri. Þetta er í átjánda sinn sem verkefnið er sett hér á landi. Tekur þinn skóli ekki örugglega þátt í ár?
Að setningu lokinni verður verkefnið ræst með viðeigandi hætti þar sem nemendur, starfsfólk og gestir munu ganga stuttan hring í nærumhverfi skólans.
Fjöldi skóla sem tekur þátt hefur fjölgað jafnt og þétt með árunum en fyrst þegar verkefnið fór af stað árið 2007 tóku 26 skólar þátt og í fyrra voru alls 83 skólar skráðir til þátttöku. Það verður gaman að sjá hvort fleiri skólar taka þátt í ár! Það er einfalt að skrá skóla til þátttöku, það eina sem þú þarft að gera er að smella hér og fylla inn nokkrar upplýsingar um skólann.
Notum virkan ferðamáta!