Harpa Reynisdóttir, skólastjóri byrjaði á því að bjóða nemendur og gesti velkomna. Andri Stefánsson, framkvæmdarstjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands tók síðan við og flutti stutt ávarp og stjórnaði dagskrá. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra tók fyrstur til máls og upplýsti nemendur um að hann hefði gengið í Melaskóla og eigi þaðan dásamlegar minningar. Einnig fór hann yfir mikilvægi þess að hreyfa sig daglega bæði fyrir líkamlega- sem og andlega heilsu. Næstur tók Sigurður Ingi Jóhannssson, innviðaráðherra til máls og hvatti hann nemendur vera duglega að taka tillit í umferðinni, bæði á gangstéttum og þegar farið er yfir gangbrautir, allir þurfa að taka tillit til umhverfisins bæði fólk og faratækja. Hann hvatti nemendur til að vera duglega að hjóla eða ganga í skólann og draga foreldrana með sér. Því næst tók Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri til máls og minnti krakkana á að lögreglan er til staðar fyrir alla, er vinur allra og vinnur af virðingu fyrir alla. Hún hvatti nemendur til að vera góðar fyrirmyndir og að gleyma aldrei hjálminum á hjólinu. Að lokum lék Lalli töframaður listir sínar fyrir viðstadda sem skemmtu sér konunglega áður en aðstandendur verkefnisins, ráðherrar, ríkislögreglustjóri, nemendur, starfsfólk og aðrir gestir gengu verkefnið formlega af stað.
Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Þar að auki er markmiðið að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.
Í ár tekur Ísland þátt í 16. skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi fer skráning skóla mjög vel af stað og auðvelt er fyrir skóla að bætast í hópinn. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 5. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 5. október.
Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Mennta- og barnamálaðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli.
Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Hrönn Guðmundsdóttir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands með tölvupósti hronn@isi.is eða í s: 692-9025.
Vefsíða verkefnisins er www.gongumiskolann.is
Fleiri myndir má finna hér