Göngum í skólann 2022 verður sett hátíðlega miðvikudaginn 7. september í Melaskóla í Reykjavík. Þetta er í sextánda sinn sem verkefnið er sett hér á landi. Tekur þinn skóli ekki örugglega þátt í ár?
Flutt verða stutt ávörp og Lalli Töframaður verður með skemmtiatriði. Að því loknu verður verkefnið ræst með viðeigandi hætti þar sem nemendur, starfsfólk og gestir munu ganga stuttan hring í nærumhverfi skólans.
Fjöldi skóla sem tekur þátt hefur fjölgað jafnt og þétt með árunum en fyrst þegar verkefnið fór af stað árið 2007 tóku 26 skólar þátt og í fyrra voru alls 79 skólar skráðir til þátttöku. Það verður gaman að sjá hvort ekki fleiri skólar taka þátt í ár! Það er einfalt að skrá skóla til þátttöku en það eina sem þú þarft að gera er að smella hér og fylla inn nokkrar upplýsingar um skólann.