31.08.2022 Skráning skóla fer vel af stað. Hægt er að skrá skólann til leiks á meðan verkefnið stendur yfir eða fram að alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 5. október næstkomandi. Við hvetjum sem flesta til að skrá skólann sinn sem fyrst.
Þeir skólar sem ætla að taka þátt í Göngum í skólann þurfa að skrá sig til þátttöku
hér á síðunni undir "skráning". Það kostar ekkert að skrá sig en tilgreina þarf nafn skóla og tengiliðs ásamt stuttri lýsingu á hvað viðkomandi skóli ætlar að gera í tilefni af Göngum í skólann mánuðinum.
Einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup og hjólabretti. Ávinningur er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða