Í dag er alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn og einnig síðasti dagur Göngum í skólann á Íslandi árið 2021. Alls skráðu 79 skólar sig til leiks sem er metþátttaka
Við þökkum öllum þeim skólum sem tóku þátt í ár og sérstakar þakkir fá þeir skólar sem sendu aukalega inn myndir og frásagnir af starfinu. Hér er hægt að sjá myndir frá skólum og hér er hægt að sjá frásagnir frá skólum.
Markmið verkefnisins er m.a. að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og um leið fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Okkar von er að þetta verkefni sé hvatning fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skóla til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla allt árið um kring.