Þann 7. október er alþjóðlegur göngum í skólann dagur og er það jafnframt síðasti dagur Göngum í skólann verkefnisins hér á landi. Það er gaman að fylgjast með því sem sem hefur farið fram í skólunum en þeir skólar sem ekki hafa sent inn efni eru hvattir til þess að gera það. Hér eru nokkrar frásagnir frá skólum sem hafa sent inn efni:
Fossvogsskóli:
"Göngum í skólann verkefnið var samþætt með stærðfræði í 1. bekk. Við unnum með stærðfræði hugtökin talnastrik og súlurit. Eftir talningar vikunnar lögðum við saman öll talnastrikin og fengum niðurstöður. Við létum ekki staðar numið þar heldur tókum niðurstöðu tölurnar og skoðuðum hvað þær væru miklir peningar. Verkefni þetta tókst vel og nemendur áhugasamir því við gátum tengt það við námsefnið þeirra".
Grunnskólinn á Þingeyri:
"Gullskórinn afhending -Göngum í skólann átak lokið: Í dag hlaut elsta stig gullskóinn 2020. Gullskórinn er viðurkenningar farandsbikar sem hópurinn vann í Göngum í skólann átakinu sem stóð í september. Allir nemendur og starfsfólk merktu þá daga sem þeir komu gangandi eða hjólandi í skólann. Allir dagar hvers námshóps voru taldir og fundið út meðaltal hvers hóps. Allir hópar stóðu sig mjög vel og það munaði ekki miklu á stigagjöfinni. Starfsmenn skólans mega taka sig á en nemendur "rústuðu" þeim í þessari keppni. Þeir starfsmenn sem hafa hjólað og gengið í vinnuna síðan í haust fengu samt klapp og lof í lófa fyrir dugnað. Fyrir afhendingu fórum við yfir ýmsa þætti sem stiðja við það að velja virkan ferðamáta og hvers við þurfum að gæta. Við minntum á nauðsyn þess að vera með hjálm þegar við hjólum og að tími endurskinsmerkja sé hafinn. Nánari reglur um hjólreiðar er að finna á vef samgöngustofu".
Grunnskólinn á Höfn:
"Við í grunnskólanum á Höfn störtuðum átaki/keppni á milli bekkjana. Hvaða bekkur myndi mest nýta sér virkan ferðamáta í skólan og létum við alla fá lista og sjá tveir nemendur um það að merkja við alla í bekknum hvernig þau koma í skólan. Við ætluðum að hafa kepnina í 2 vikur en vegna Covid og lokunnar í skólanum í nokkra daga ákváðum við að lengja keppnina um eina viku. Þá tökum við listana og skoðum hverjir eru virkustu bekkirnir og fá þrír efstu bekkirnir viðurkenningarskjal. Auk þess merkir starfsfólk við það hvernig það kemur í skólann og þá getum við séð hvernig starfsfólk er nýta sér virkan ferðamáta líka og verða þau verðlaunuð á einhvern hátt".