Við þökkum öllum þeim skólum sem tóku þátt en þeir voru 74 í ár.
Margir skólar sendu inn frásagnir og myndir af því sem fór fram í skólunum og hefur verið gaman að fylgjast með því hversu fjölbreytt og skemmtilegt starfið er í grunnskólum landsins.
Markmið verkefnisins sem er m.a. að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og um leið fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Okkar von er að þetta verkefni sé hvatning fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skóla til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla allt árið um kring.