Göngum í skólann var sett í Hofsstaðaskóla í Garðabæ í morgun að viðstöddum góðum gestum. Hafdís B. Kristmundsdóttir skólastjóri byrjaði á því að bjóða nemendur og gesti velkomna. Þráinn Hafsteinsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ tók síðan við og flutti stutt ávarp og stjórnaði dagskrá. Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, flutti skemmtilegt ávarp þar sem hún kenndi viðstöddum 3 tákn á táknmáli, göngum, skóli og heim, en það vakti mikla lukku. Því næst tók Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar til máls en hann hvatti börnin til að vera dugleg að ganga í skólann og sérstaklega með vinum sínum. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu gaf krökkunum góð ráð í umferðinni og bað börnin um að passa að foreldrar væru ekki símanum við aksturinn. Því næst hvatti Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu nemendur og gesti til að velja öruggustu leiðirnar í og úr skóla. Kór Hofsstaðaskóla ásamt nemendum söng eitt lag áður en trúðurinn Wally frá Sirkusi Íslands steig á stokk. Að lokinni dagskrá gengu aðstandendur verkefnisins, ráðherra, bæjarstjóri, lögreglustjóri, nemendur, starfsfólk og aðrir gestir verkefnið af stað með viðeigandi hætti með því að ganga lítinn hring í nærumhverfi skólans.
Myndir frá setningu Göngum í skólann má sjá hér á myndasíðu ÍSÍ.