Göngum í skólann 2019 verður sett hátíðlega miðvikudaginn 4.september í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Þetta er í 13. sinn sem verkefnið er sett hér á landi. Tekur þinn skóli þátt í ár?
Flutt verða stutt ávörp og munu nemendur syngja fyrir gesti og Sirkus Íslands verður með skemmtiatriði. Að því loknu verður verkefnið ræst með viðeigandi hætti þar sem nemendur, starfsfólk Hofsstaðaskóla og gestir munu ganga stuttan hring í nærumhverfi skólans.
Skólum sem taka þátt hefur fjölgað jafnt og þétt og verður gaman að sjá hvort ekki bætast við nýjir skóar í ár. Hægt að skrá skóla til leiks allan tíman á meðan að verkefnið er í gangi og er það afar einfalt. Skrá skóla!