Grunnskólinn á Þingeyri hleypti Ólympíuhlaupinu af stað þann 14. september síðastliðinn og tengdi hlaupið við Göngum í skólann verkefnið. Ólympíuhlaupið sem áður var þekkt sem Norræna skólahlaupið hefur farið fram í grunnskólum landsins óslitið frá því árið 1984 og Göngum í skólann fer nú fram tólfta árið í röð.
Það var tilvalið hjá Grunnskólanum á Þingeyri að tengja þessa tvo viðburði og gera sér glaðan dag. Sólin lét sjá sig á meðan nemendur hlupu í gegnum markið og eftir hlaup fengu allir auka skammt af ávöxtum og fóru svo í sund. Nemendur höfðu allir sett sér það markmið að gera sitt besta sem tókst með prýði og hlupu krakkarnir samtals 183,5 km þennan dag.