Í morgun var Göngum í skólann verkefnið formlega sett í Ártúnsskóla, Árbæ. Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ stjórnaði dagskrá.
Rannveig Andrésdóttir skólastjóri bauð nemendur og gesti velkomna. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs flutti stutt ávarp og þar á eftir talaði Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu við börnin. Nemendur í Ártúnsskóla fluttu tvö lög fyrir viðstadda og að lokum mætti Sirkus Íslands með skemmtiatriði við góðar undirtektir nemenda.
Verkefnið var að lokum formlega sett með táknrænum hætti þegar nemendur, starfsfólk skólans og góðir gestir fóru í göngutúr um hverfið.