Nú er skólastarf hafið í flestum grunnskólum landsins og er tilvalið að hvetja börnin til að velja sér virkan ferðamáta í skólann strax í byrjun skólaárs.
Mikilvægt er að fara vel yfir umferðarreglur með börnunum en hægt er að fara á umferðarvefinn umferd.is sem er fræðsluvefur um umferðarmál fyrir nemendur í grunnskóla, kennara og foreldra. Vefurinn er til þess fallinn að auka áhuga á umferðaröryggi í skólastarfinu. Þar að auki er mikilvægt að ökumenn gæti sérstakrar varúðar í nálægð við skóla- og íþróttasvæði.
Skráning í Göngum í skólann er hafin og eru skólastjórnendur hvattir til þess að skrá skólana sína til leiks sem hægt er að gera hér.