Núna um helgina hefst Íþróttavika Evrópu (European Week of Sports) og stendur hún yfir frá 23.-30. september. Þetta er í annað sinn sem Íþróttavikan er haldin á Íslandi en hún var fyrst haldin árið 2015.
Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Slagorð vikunnar er "BeActive"eða „Vertu virkur“ og með því er verið að hvetja alla Evrópubúa til að hreyfa sig án tillits til aldurs, bakgrunns eða líkamlegs forms.
Göngum í skólann er hluti af því verkefni og hafa þau sameiginleg markmið varðandi hreyfingu og heilbrigðan lífstíl grunnskólabarna. Virkur ferðamáti er ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi svo sem með göngu, hjólreiðum, hlaupum, línuskautum og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.
Hægt er að kynna sér á Íþróttaviku Evrópu á Íslandi á heimasíðu BeActive og Facebook-síðu.